Landsþing POWERtalk að vori er hátíðlegur lokapunktur á vetrarstarfinu. Flestar deildir fara í langt og gott sumarfrí eftir landsþingið. Félagar mæta því sólbrúnir og hressir aftur til leiks eftir sumarfríið á haustin. Fyrstu fundir eru haldnir í deildum í september og eins og venjulega eru gestir ávallt velkomnir. Í þessari viku munu Súla á Akureyri og Fífa í Kópavogi funda. Hlökkum til að sjá þig 🙂