25.Landsþing samtakanna tókst virkilega vel í alla staði. Um 60 félagar voru skráðir til leiks og voru 13 gestir á laugardagskvöldinu. Við komu og skráningu fengu allir glæsilega sérmerkta POWERtalk tösku í tilefni 25. þingsins, með fundargögnum. Setning þingsins var hátíðleg og ræðukeppnin sem kom í kjölfarið, skemmtileg og fræðandi. Alls tóku fimm keppendur þátt fyrir hönd sinnar deildar. Ræðumaður kvöldsins var Þórunn Björk Pálmadóttir með áróðursræðu, ræðuefni þjóðtrú og ræðuheitið 7,9,13. Við óskum henni til hamingju. Eftir gómsæta humarsúpu, týndi Anna Kristín Kjartansdóttir ýmislegt uppúr skjóðunni í orðsins fyllstu merkingu og minnti okkur á ágæti þess að taka til í handtöskum okkar annað slagið.













































Nú styttist enn meir í Silfurþingið og undirbúningsnefndin verður sífellt meira vör við þann meðbyr sem þingið nýtur hjá félagsmönnum, rétt eins og samtökin okkar öll.

