
Hópurinn sem mætti í Freyjulund var öflugur og glaðvær og tók hraustlega til hendinni þar sem þess þurfti. Talað var um að mæting hefði verið með besta móti og gaman var að sjá hve margir tóku ungviði með sér í lundinn, en að sjálfsögðu létu þau ekki sitt eftir heldur unnu alveg til jafns á við hina fullorðnu.
Ráðist var í að gera göngustíginn enn greinilegri, flötinn jöfnuð það sem fyrirhugað er að setja púlt, nokkrum reynitrjám plantað, greinar klipptar, íllgresi upprætt, mikið hlegið, oltið um þúfur og svo var nartaði í nesti. Veðrið var alveg eins og búið var að ákveða, örlítil rigning og logn, en rigningin var sérstaklega pöntuð þar sem verið var að gróðursetja og vökva þurfti plönturnar. Við hlökkum til að koma aftur í lok ágúst, á afmælishátíð Freyjulundar og fylgjast svo með trjánum sem við plöntuðum, næstu árin. Hægt er að sjá myndir frá samkomunni hér til hliðar, undir "svipmyndir úr starfi"