Þann 19 maí 2010 var haldinn sameiginlegur lokafundur hjá Korpum og Fífum á veitingastaðnum Esjustofu við Esjurætur. Vel var mætt úr báðum deildum og einn gestur var á fundinum.
Við vorum látnar draga miða með fyrriparti þegar við mættum og við áttum að leita að seinniparti sem passaði og þar áttum við að sitja, gott ráð til að blanda fólki saman. Fundarstefið var “Sumarið er tíminn” og Þórunn B. Pálmadóttir forseti Korpu setti fundinn og Björg Aradóttir forseti Fífu var með hvatningu, en Olga E. M. Egonsdóttir var veislustjóri og hún hafði sett á borðin litla miða með einu orði á og við áttum að segja þessi orð í tíma og ótíma. Þetta var mjög skemmtilegt það heyrðist sagt “ ME” á einum stað og einn virðulegur félagi var alltaf að segja “ eru engir karlmenn á lausu hérna í kvöld” og margt annað skemmtilegt var sagt á ólíklegustu stundum. Það var spurningarkeppni og höfðu Korpu konur betur ( auðvitað ) og svo var sungið saman og borðaður góður matur.Að lokum voru nýjar stjórnir settar inn hjá báðum deildum og fráfarandi stjórnum þakkað fyrir vel unnin störf í vetur, Auður Gústafsdóttir setti inn nýja stjórn hjá Korpu og fórst henni það vel úr hendi og þótti mér þetta vera virðulegt og falleg athöfn. Í vetur var stef forseta okkar í Korpu “ fræ eru fyrirheit” og langar mig að lokum að taka undir orð eins félagans að þau fræ sem voru sett niður þegar ég gekk í Korpu s.l. haust hafa aldeilis orðið að fallegu blómi sem ég ber með mér í sumar og hlakka til að takast á við nýjan vetur með ykkur öllum.
Sumarkveðja Lára Sif.












































