Korpa er umsjónaraðili Freyjulundar í Heiðmörk þetta árið og ákveðið hefur verið að hittast þar miðvikudaginn 9.júni um kl. 17. Fyrirhugað er að snyrta svæðið, afmarka göngustíg, planta og hafa gaman saman. Öll áhöld og eitthvað af plöntun verða á staðnum. Þeir sem vilja nota sín áhöld og jafnvel setja niður eitthvað af fjölæringum, runnum og trjám úr sínum görðum er það alveg frjálst. Jafnvel gæti verið gaman að koma með plöntur að heiman og fylgjast svo með plöntunum "sínum" vaxa og dafna næstu árin og þá kannski sérstaklega í ljósi þess að Freyjulundur verður 30 ára, 30. ágúst nk.
Vonumst við til að sjá sem flesta félaga og athugið að makar og börn eru velkomin með.
Kort af staðsetningu Freyjulundar má finna hér en við munum merkja okkur með blöðrum umræddan dag.












































