Við erum komin með malbikaða vegi, tækninni fleygir fram á öllum sviðum - en getur verið að komin sé önnur Sturlungaöld á Íslandi? Tímamótaræða var flutt á fundi Jóru 1. febrúar sl. þar sem þessari spurningu var varpað fram og ótrúleg líkindi komu í ljós. Ræðumaður hafði meðferðis lýsigögn þar sem borin voru saman vopn Sturlungaaldar og nútímans, þ.e. öxi og sveðja, móti hlutabréfum sem nú tíðkast.
Önnur ræða kvöldsins fjallaði um kvenveskið og allt sem nausynlegt er að hafa meðferðis í veskinu þegar konur fara í leiðangra út af heimilinu.
Að brosið sé það dýrmætasta sem hægt er að gefa þeim sem ekki getur lengur gefið öðrum bros, er dýrmætur sannleikur sem aldrei er of oft kveðinn. Enda góð ræða sem flutt var um efnið.
Þjálfunardagskránni lauk síðan með ræðu um Afríku. Þar sem einn Jórufélaga ætlar að leggja land undir fót í næsta mánuði og heimsækja þessa framandi heimsálfu, þræða eyðimörkina og fara á úlfaldabak, svo eitthvað sé nefnt. Verður spennandi að heyra ferðasöguna þegar hún kemur heim aftur.
Að geta haldið ræðu er ekkert sjálfsagt mál - nema fyrir þann sem hefur notið þjálfunar í POWERtalk samtökunum. Þess höfum við svo sannarlega fengið að njóta í vetur með fjölbreyttu efni um hvaðeina sem frjóum félögum hefur dottið í hug.
Það er tillhlökkunarefni að mæta á næstu fundi sem eru sannarlega hver með sínu móti, fræðslur í bland við ræður og annað skemmtiefni. Minni á að allir fundir eru opnir gestum - sannarlega full ástæða til að koma og njóta!















































