Fundur Korpu þann 3. febrúar var mjög fjölmennur og hófst á því að forseti setti fund og félagar og gestir kynntu sig en forseti landssamtakanna, Ingibjörg Vigfúsdóttir heiðraði okkur með nærveru sinni. Í hvatningunni var lagt út frá stefi kvöldsins sem var “Líkt og kletturinn lætur vindinn ekki á sig fá, lætur greint fólk hrós og skammir ekki á sig fá”.
Lagt var út frá jákvæðninni og bent á að þegar fólk minnist á áhrifavalda í lífi sínu þá væru það einstaklingar sem hefðu haft jákvæð áhrif á það en ekki neikvæð. Framhaldssagan er farin að taka á sig skemmtilega mynd en Indlandsfarinn hefur komist að því að frænka hennar hafði haldið við giftan mann og verið plantekrueigandi. Maður fékk tilfinningu fyrir litadýrðinni, fólksmergðinni og hitanum þarna suðurfrá. Eitthvað komu perlur við sögu og álma í 200 ára gömlum herragarði sem var fyrir munaðarlaus börn. Maður veit víst ekki allt í henni veröld og alltaf verið að koma manni á óvart, sem eykur forvitnina og mann þyrstir í að vita meira. Þegar Guðrún hafði leitt okkur inn í Indverska veröld þá tók veruleikinn við og komið var að félagsmálahluta fundar sem var að mörgu leiti hefðbundinn nema hvað forseti kynnti umsóknir 5 nýrra félaga og Korpur fögnuðu með kröftugu lófataki. Forseti hvatti félaga til að taka þátt í MogR keppninni og liðið var myndað áður en fundinum lauk.
Gunnjóna Una var með fyrstu POWERtalk fræðsluna af 6 sem ráðgert er að halda í vetur og fjallaði hún um “Uppbyggingu ræðu”. Una fékk Þórunni til liðs við sig og var þetta mjög skemmtileg og fræðandi kynning. Hún tók meðal annars fyrir munin á ræðu, frásögn og erindi, hve tilefni ræðu skiptir miklu máli og það hvernig maður nálgast efnið. Hún nefndi hugmyndakassann til að skrá niður allar hugmyndir og lagði áherslu á hve upphaf og lok ræðu væri mikilvægt. Una fangaði salinn með því að varpa fram spurningum og félagar og gestir tóku virkan þátt sem gerði fræðsluna mjög líflega og skemmtilega.
Forseti landssamtakanna var með opið hæfnismat á fundinn, en það er afar gagnlegt að fá utanaðkomandi álit á fundinum og ábendingar um það sem betur megi fara. Ingibjörg gaf jákvætt og uppbyggjandi álit. Lokaorðin voru vel flutt af Láru Sif sem tengdi þau stefi kvöldsins. Forseti tilkynnti í lokin að tveir nýjir félagar hefðu sótt um inngöngu í lok fundar. Ég verð að segja það að heim fór ég glöð og ánægð í sinni yfir skemmtilegu og uppbyggilegu kvöldi með Korpum nú sem endranær.
Jóhanna Ingólfsdóttir















































