Nýjasta og fyrsta hefti ársins 2010 af raftímaritinu POWERtalking, janúar-febrúar, barst áskrifendum í dag en það verður birt á vefsíðu alþjóðasamtakana 5. febrúar n.k. Þetta er 15. tölublað ritsins og er það að þessu sinni helgað umfjöllun um alls konar fyrirlestra og kynningar.
Fjallað er almennt um framkomu og tækni í fyrirlestrum; greinar eru um sölumennsku; um fyrirlestra við erfiðar aðstæður og um viðkvæm málefni; sérstök grein er um hvernig á að komast hjá því að fara út um víðan völl eða vaða elginn; þá um mátt og máttleysi kraftbendilssýninga (Power Point); starfsmannaþjálfun og ræðutækni sem kölluð er -Demantshringurinn-. Aðfaraorð skrifar forseti alþjóðastjórnar POWERtalk International, Margaret Sutherland.
Á þessari vefslóð er annars vegar hægt opna blaðið á skjótan hátt til að fletta og skoða (online) án þess að prenta, eða hinsvegar að hlaða eintaki af blaðinu niður á skjáborð (desktop) tölvu til áframhaldandi aðgengis þar eða útprentunar.
Þeir sem nota nýjustu uppfærslu af Firefox sem vafrara gætu lent í vandræðum með niðurhal á skjáborð en ættu vandræðalaust geta skoðað blaðið "online".















































