POWERtalk á Íslandi

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Gagn og gaman

Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sorpflokkun, sólgleraugu, hugleiðsla og ilmolíur, er meðal þess sem hefur veriðá dagskrá á fundum hjá Jóru það sem af er þessu hausti. 
 
Gagn og gaman er stef forseta Jóru þetta starfsár og er lýsandi fyrir markmið vetrarins. Undanfarið hefur námskeið í ræðumennsku einkennt fundina, en meðfram því hafa félagarnir flutt verkefni sem kallast upplýsingaræður og hefur margt skemmtilegt komið út úr því eins og ofangreind upptaling ber vitni um. Á næsta fundi verða hjálpargögn á dagskrá þar sem félagarnir spreyta sig á að flytja stuttar ræður með viðeigandi hjálpargögnum. 

 

Hvernig er góð ræða ?

Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudaginn 2. nóvember verður haldin ræðukeppni deildarinnar í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, Strandbergi.  Fimm félagar munu flytja ræður, dómarar munu dæma í 1., 2. og 3. sætið.  Sumir eru að taka þátt í ræðukeppni í fyrsta sinn.  Keppnin er æfiing í textagerð, flutningi frammi fyrir  fleirum en deildarfélögum, blæbrigði í flutningi og sannfæringarkrafti.

Öllum er velkomið að koma og sjá hvernig við æfum okkur í að verða sífellt betri +i að koma fram.  Þarna fer fram jákvætt hæfnismat  jafninga og stuðningur í hvívetna.
Fundur byrjar kl. 20.00 og stendur til 22.00
 

Allir eru landkönnuðir í Fífu.

Senda hlekk á þessa síðu til vinar
394. fundur Fífu var haldinn þann 7. október í safnaðarheimili Hjallakirkju.
Hulda Jóhannesdóttir ein af eldri félögum Fífu fræddi okkur um tímavörslu og kúnstina við það að halda tímamörk og mæta á réttum tíma. Góð vísa sem aldrei er of oft kveðin.
Eftir því sem leið á fundinn þá magnaðist upp eftirvænting, ekki bara eftir því að komast í kaffihlé og smakka á veitingunum sem Guðrún Viggósdóttir  hafði töfrað fram, heldur einnig , að það átti að setja  tvo nýja félaga inn í deildina.
Lesa meira...
 

Spennandi námstefna framundan...

Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Námstefna POWERtalk International á Íslandi verður haldin í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Hábraut 1a í Kópavogi, laugardaginn 14. nóvember.  Boðið verður upp á áhugaverða fyrirlestra, meðal annars um raddbeitingu.  Drög að dagskrá er hægt að nálgast hér.  Félagar eru eindregið hvattir til að mæta - og taka með sér gesti
 


Síða 17 af 17

Næstu atburðir

Jórufundur - nýtt starfsár
Mán Sep 06 @20:00 - 22:00

Harpa - Fyrsti fundur starfsársins 2010-2011
Þri Sep 14 @19:00 - 22:00

Opinn fundur landsstjórnar með embættismönnum deilda
Lau Sep 18 @10:00 - 13:00

Harpa - Kynningarfundur
Þri Sep 28 @20:00 - 22:00

Gestir á síðunni

Það er/u 73 gestir inni

Fjöldi heimsókna

mod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_counter
mod_vvisit_counterÍ dag135
mod_vvisit_counterÍ gær199
mod_vvisit_counterÍ þessari viku135
mod_vvisit_counterÍ þessum mánuði921
mod_vvisit_counterSamtals206643

Hönnun: POWERtalk á Íslandi
© 2008 Allur réttur áskilinn POWERtalk á Íslandi
Við erum líka á Facebook