POWERtalk á Íslandi

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Dagskrárdrög Landsþingsins

Senda hlekk á þessa síðu til vinar

25_anniversary_cake_topper

Nú styttist óðum í 25.Landsþingið og drög eru komin að dagskránni. Það er áfangi á þjálfunnarbrautinn að taka að sér verkefni á landsþingi og greinilega ætla félagar ekki að láta sér þetta tækifæri úr greipum renna.  Það er því sérlega ánægjulegt að taka það fram að öll dagskráin er í höndum POWERtalk félaga.

Lesa meira...
 

Hörpufélagar rýna kvikmyndina It´s Complicated

Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Kvikmyndagagnrýni á It's Complicated

POWERtalk  Hörpufélagar létu verða af því að bregða sér af bæ og fóru í kvikmyndahús saman til að kynna sér myndina It's Complicated. Tilgangur ferðarinnar var að setja upp kvikmyndagagnrýni á fundi Hörpunnar þann 23. febrúar.

ItsComplicatedStef fundarins var að sjálfsögðu valið eftir efni myndarinar eða  „Ástin er aðeins hjal; vinir eru það sem skipta máli“.  Undir liðnum borðtjáning voru skemmtilegar lýsingar af upplifun á myndinni sem vöktu mikla kátínu og ekki síst þegar rætt var um tengingu efnis við hið raunverulega líf hvers og eins. Undir liðnum POWERtalk dagskrá var síðan hafist handa við að kryfja menningarlegt gildi myndarinnar til  mergjar.

Lesa meira...
 

Framkoma í ræðustól

Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Korpa5Það er alltaf ánægjuleg tilhugsun að Korpu fundur sé í nánd. Fundurinn s.l. miðvikudag 17. febrúar var engin undantekning. Ég var mætt kl 19.30 þar sem ég er í Mak nefnd. Hafist var handa að raða borðum og stólum og undirbúa veitingar. Það var góð mæting alls 19 manns, þ.a. 5 gestir.
Lesa meira...
 

Hvað gerist í ræðukeppni?

Senda hlekk á þessa síðu til vinar
raedukeppni_joru_2010Hin árlega ræðukeppni Jóru var haldin í Selinu, Engjavegi 44 Selfossi, mánudaginn 1. mars.
Í þessum félagsskap ríkir gamli ungmenna-félagsandinn, því hér er sagt að allir séu sigurvegarar í ræðukeppni sem þessari. Það er líka veruleg áskorun að standa fyrir framan hóp af ókunnugu fólki og halda ræðu.  Dómarar eru fengnir að til að gæta jafnræðis og ætlast er til að þeir séu á engan hátt tengdir einum keppanda fram yfir annan. Þrír keppendur tóku áskoruninni en það var Sigríður Pálsdóttir sem bar sigur úr býtum í þetta sinn. Auk hennar kepptu þær Marjaana Hovi og Ingunn Gunnarsdóttir. 
Lesa meira...
 

Ómissandi bókamerki

Senda hlekk á þessa síðu til vinar

bokamerkiproforksmaSvona líta nýju bókamerki POWERtalk  á Íslandi út.  Þau eru eitt af mörgum verkum Upplýsinga- og kynningar-nefndar þennan veturinn til að auka sýnileika samtakanna á Íslandi. Bókamerkin hafa nú verið kynnt í flest öllum deildum POWERtalk og munu vonandi nýtast deildunum vel til auglýsinga. Dagrún Jónsdóttir deildarforseti Írisar í Hafnarfirði hefur haft veg og vanda að útgáfu og dreifingu á merkjunum. Eru félagar allra POWERtalk deilda á Íslandi hvattir til að leita leiða til að koma bókamerkjunum á framfæri. Hægt er að nálgast bókamerki hjá varaforseta POWERtalk í gegnum tölvupóstfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 


Síða 8 af 17

Næstu atburðir

Harpa - Fyrsti fundur starfsársins 2010-2011
Þri Sep 14 @19:00 - 22:00

Kynningarfundur í KORPU
Mið Sep 15 @20:00 - 22:00

Opinn fundur landsstjórnar með embættismönnum deilda
Lau Sep 18 @10:30 - 13:00

Harpa - Kynningarfundur
Þri Sep 28 @20:00 - 22:00

Ísafoldarfundur
Fim Okt 07 @19:30 - 21:30

Gestir á síðunni

Það er/u 48 gestir inni

Fjöldi heimsókna

mod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_counter
mod_vvisit_counterÍ dag85
mod_vvisit_counterÍ gær134
mod_vvisit_counterÍ þessari viku566
mod_vvisit_counterÍ þessum mánuði1352
mod_vvisit_counterSamtals207074

Hönnun: POWERtalk á Íslandi
© 2008 Allur réttur áskilinn POWERtalk á Íslandi
Við erum líka á Facebook