POWERtalk á Íslandi

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Skráning hafin

Senda hlekk á þessa síðu til vinar

signature1Skráning á 25.landsþing POWERtalk er hafin, en skráningarblöð ásamt dagskrárdrögum hafa verið send öllum deildum. Félagar eru eindregið hvattir til að skrá sig sem fyrst og hvetja aðra til að gera slíkt hið sama og sýna þannig þann kraft og samhug sem býr í samtökunum. Þín þátttaka á þinginu skiptir máli. Umsjón með skráningu hefur Lenka Zimmermanová og hægt er að senda henni póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .  Hvaða deild skyldi hreppa gulrótina í ár?

 

Saga - the English Club

Senda hlekk á þessa síðu til vinar

The 49th regular club meeting of Saga will be held in Hlégarður, Mosfellsbæ, the 24th of March at 19:30 to 21:30 hrs. the theme of the meeting is Easter. Guests are wellcome.

 

Jóra lagði Hörpu í rökræðum! Og Korpa lagði Fífu

Senda hlekk á þessa síðu til vinar

clockFyrri umferð í Mælsku og rökræðukeppni lauk með sigri Jóru í spennandi keppni við Hörpu og fengu þar með fellda tillögu um að leyfa ætti reykingar á deildarfundum.

 Í seinni umferð sigraði Korpa ræðulið Fífu og fá því að leggja þátttöku Júróvision 2011 í þjóðaratkvæðagreiðslu - Lengi lifi alvöru lýðræði !!!

Allir hvattir til að mæta á úrslitakeppnina  til að verða vitni að viðureign Jóru og Korpu 25. mars nk. kl. 20:00 í Flugvirkjasalnum á 3. hæð Borgartúni 22, Rvk.
Minni á að gestir eru boðnir velkomnir í klapplið!!!
 

Skemmtilegur fundur í Fífu miðvikudaginn 17. mars 2010

Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Að vanda var skemmtilegur fundur í Fífu miðvikudaginn 17. mars sl. Fyrir utan hefðbundna dagskrárliði eins og félagsmál, hvatningu og lokaorð flutti nýliðinn Guðfinna Ósk Erlingsdóttir sitt fyrsta verkefni sem var ljóðalestur ásamt kynningu á höfundi. Þá var þjálfunardagskráin mjög skemmtileg þegar félagar fengu allir að spreyta sig á sögu sem þurfti að prjóna við alveg óundirbúið. Vegna veikinda féll einn dagskrárliður niður en Sigrún Guðjónsdóttir bjargaði málunum með því að segja frá mjög spennandi ferð sinni til New York, Las Vegas og L.A. sem hún fór í til að kynna hönnunarlínu sína Gyðja Collection. Þá fór fram skráning í ræðukeppnina sem verður innan deildarinnar miðvikudaginn 7. apríl. Væntanlegir keppendur drógu spenntir þrjá miða hver með efni sem þeir eiga að velja sér sem umfjöllunarefni í ræðu sinni í þeirri keppni.
 

Mælsku- og rökræðukeppni POWERtalk hefst 11. mars

Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Harpa2Þá er loksins komið er að einum skemmtilegasta viðburði í starfi samtakanna POWERtalk á Íslandi, en það er Mælsku- og rökræðukeppni.  Undanúrslit verða haldin fimmtudaginn 11. mars næstkomandi kl. 19:00.  Þá keppa 4 deildir, þær Fífa Kópavogi og Korpa Mosfellsbæ, Harpa Reykjavík og Jóra Selfossi.  Í fyrri umferð leggur Harpa til að reykingar verði leyfðar á Powertalk fundum. Jóra andmælir þeirri tillögu. Í seinni umferð leggur Korpa til að lagt verði í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort Íslendingar taki þátt í Eurovisionsöngvakeppninni 2011. Úrslitakeppni verður síðan haldin þann 25. mars. 

Lesa meira...
 


Síða 7 af 17

Næstu atburðir

Harpa - Fyrsti fundur starfsársins 2010-2011
Þri Sep 14 @19:00 - 22:00

Kynningarfundur í KORPU
Mið Sep 15 @20:00 - 22:00

Opinn fundur landsstjórnar með embættismönnum deilda
Lau Sep 18 @10:30 - 13:00

Harpa - Kynningarfundur
Þri Sep 28 @20:00 - 22:00

Ísafoldarfundur
Fim Okt 07 @19:30 - 21:30

Gestir á síðunni

Það er/u 45 gestir inni

Fjöldi heimsókna

mod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_counter
mod_vvisit_counterÍ dag79
mod_vvisit_counterÍ gær134
mod_vvisit_counterÍ þessari viku560
mod_vvisit_counterÍ þessum mánuði1346
mod_vvisit_counterSamtals207067

Hönnun: POWERtalk á Íslandi
© 2008 Allur réttur áskilinn POWERtalk á Íslandi
Við erum líka á Facebook