POWERtalk á Íslandi

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Alþjóðleg námstefna í Kobe í Japan í haust

Senda hlekk á þessa síðu til vinar

KobeNæsta námstefna eftir silfur-landsþingið á Íslandi í byrjun maí verður alþjóðleg námstefna  POWERtalk International (Training weekend 2010) sem haldin verður á Portopia Hotel í borginni Kobe í Japan helgina 22.-24. október 2010

Skráningareyðublöð og nánari upplýsingar um áhugaverðar skipulagðar skoðunarferðir eftir stefnuna er nú hægt að nálgast á félagahluta vefsíðu alþjóðasamtakanna undir hlekknum "Training weekend 2010".
Umsjónarmaður alþjóðlegu námstefnunnar í Kobe er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Tölvupóstfang: kazukoi (hjá) attglobal.net

 

Skráning á Landsþingið gengur vel

Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Það er gaman að segja frá því að skráning félaga á Landsþingið er á fullu þessa dagana og greinilegt að þó nokkrar deildir stefna á að ná gulrótinni.  Við hvetjum alla til að mæta og missa ekki af þessari skemmtilegu uppskeruhátíð okkar POWERtalk félaga.  Dagskrár- og undirbúningsnefndir eru í óðaönn að skipuleggja "Silfurþingið" og vonast til að sjá sem flesta. Ef það er eitthvað sem félagar eru að velta vöngum yfir vegna þingsins þá er um að gera að senda línu á umsjónamann.  Netfangið er: thorunnbp(hjá)hotmail.com
 

HO HO HA HA HÍ HÍ

Senda hlekk á þessa síðu til vinar
383 fundur Korpu var haldinn þann 3. mars í Safnaðarheimili Lágafellssóknar. Það er alltaf ánægjulegt að mæta á fundi hjá Korpu. Stef fundarins var „Að þora er að tapa fótfestunni um stund, að þora ekki er að tapa sjálfum sér“.
Lesa meira...
 

Gulrót

Senda hlekk á þessa síðu til vinar
carrotÞessar línur eiga ekki að vera áróður fyrir grænmetisáti nú þegar tími páskaeggjana gengur í garð, en fyrir þá sem ekki þekkja til þá er gulrót í boði á Silfurþinginu. Eins og þið takið eflaust eftir er talað í eintölu, þ.e. um "gulrót" . Fyrir utan það að gulrótin sé afar girnileg og safarík þá er mikill fengur í henni. Gulrótina hreppir sú deild sem mætir hlutfallslega með flesta félaga á Landsþingið. Gulrótin er sem sagt sú að vinningsdeildin fær eitt sæti endurgreitt á landsþinginu, sem hún getur þá gert við það sem hún vill, -deild niður á þá félaga sem mættu á þingið eða hvað eina.  Verður þín deild með bestu mætinguna á "Silfurþingið" og fær gulrót?
 

“Í alvöru... er þetta satt?”

Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Að vanda var þetta skemmtilegur fundur hjá Korpum 17.3. 2010. Engin umræðuefni eru okkur óviðkomandi, við vitum ýmislegt um sleikipinna, símavændi og allt þar á milli. Við erum bara orðnar mjög leiknar við að draga upp lýsandi myndir með frásögnina að vopni. Á fundinum fengum við að æfa okkur í að ýkja og jafnvel skrökva heilu sögunum af okkur sjálfum og við komumst að því að enginn kemst með tærnar þar sem við höfum hælana (að minnsta kosti að eigin áliti).
Lesa meira...
 


Síða 6 af 17

Næstu atburðir

Harpa - Fyrsti fundur starfsársins 2010-2011
Þri Sep 14 @19:00 - 22:00

Kynningarfundur í KORPU
Mið Sep 15 @20:00 - 22:00

Opinn fundur landsstjórnar með embættismönnum deilda
Lau Sep 18 @10:30 - 13:00

Harpa - Kynningarfundur
Þri Sep 28 @20:00 - 22:00

Ísafoldarfundur
Fim Okt 07 @19:30 - 21:30

Gestir á síðunni

Það er/u 46 gestir inni

Fjöldi heimsókna

mod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_counter
mod_vvisit_counterÍ dag85
mod_vvisit_counterÍ gær134
mod_vvisit_counterÍ þessari viku566
mod_vvisit_counterÍ þessum mánuði1352
mod_vvisit_counterSamtals207074

Hönnun: POWERtalk á Íslandi
© 2008 Allur réttur áskilinn POWERtalk á Íslandi
Við erum líka á Facebook