Það er ágætt að breyta til og á þessum fundi var kaffihúsastemmning. Við slepptum púltinu og borðum var raðað upp á annan hátt en venjulega. Í byrjun fundar fengu félagar miða þar sem á stóð brandari og voru þeir lesnir upp á milli dagskráliða og var mikið hlegið. Stef fundarins gerðu ráð fyrir árangri og þú munt uppskera er í takt við starfið sem fram hefur farið í Korpu s.l. vetur og sýndi sig meðal annars í að Korpufélagar unnu til verðlauna á Landsþinginu nú í vor.













































25.Landsþing samtakanna tókst virkilega vel í alla staði. Um 60 félagar voru skráðir til leiks og voru 13 gestir á laugardagskvöldinu. Við komu og skráningu fengu allir glæsilega sérmerkta POWERtalk tösku í tilefni 25. þingsins, með fundargögnum. Setning þingsins var hátíðleg og ræðukeppnin sem kom í kjölfarið, skemmtileg og fræðandi. Alls tóku fimm keppendur þátt fyrir hönd sinnar deildar. Ræðumaður kvöldsins var Þórunn Björk Pálmadóttir með áróðursræðu, ræðuefni þjóðtrú og ræðuheitið 7,9,13. Við óskum henni til hamingju. Eftir gómsæta humarsúpu, týndi Anna Kristín Kjartansdóttir ýmislegt uppúr skjóðunni í orðsins fyllstu merkingu og minnti okkur á ágæti þess að taka til í handtöskum okkar annað slagið
Skilafrestur á ráðningu á verðlaunagetraun 











